
Flísabúðin hefur verið rekin undir því nafni frá 1983. Upphaflega var verslunnin í Kópavogi og hét þá Víkurbraut en var frá upphafi auglýst og rekin undir nafni Flísabúðarinnar. Við eigendaskipti 1988 var Flísabúðin hf stofnuð.
Komdu með þínar hugmyndir og við útfærum þær í formi flísa. Við leggjum metnað okkar í að bjóða eingöngu viðurkennda gæðavöru á góðu verði. Hjá okkur eru fagmenn í hverju rúmi, fagmenn með mikla reynslu, þekkingu á efninu og ráðleggingar á reiðum höndum.
Líttu við hjá okkur á Stórhöfðanum, þú sérð ekki eftir því. Ef þig vantar flísar á baðið mundu eftir að koma með málin þ.e. lengd, breidd, hæð, staðsetning W.C, baðvasks, vaska ( innréttinga ), glugga, sturtuklefa, ofna, hurðar o.s.frv. Ef þig vantar flísar á stofuna, holið eða á allt húsið þá er gott að þú komir með teikningar hússins.
UMSAGNIR VIÐSKIPTAVINA
STARFSMENN OKKAR
Fagmenn í hverju horni starfa hjá okkur.